Færsluflokkur: Bloggar
15.5.2008 | 13:16
Ömurlegt lið á þessu landi...
Hva. djö.. þetta er hræðilega ömurlegt lið sem er að blogga hérna. Það eina sem því dettur í hug er að gera lítið úr öðrum. Það er eins og það sé þjóðaríþrótt íslendinga að trúa ekki á hvort annað og það sé best að hjálpaðast að við að finna mestu aulana í samfélaginu og gera grín að þeim. Á meðan ég er að gera grín að öðrum og lítið úr öðrum er ég save... það er hugsunin. ... Þetta er ömurlegur blettur á samfélaginu....
Það er staðreynd að Alþingismenn eru með eftirlaun sem ná engri átt það er staðreynd að bensínið er hæst hér á norðurlöndunum miðað við launatölu..( danir, svíar, norðmenn, finnar) fá allir meira bensín í laun, talið á tíman t.d. 12 lítra á miðað við 6 lítra hjá íslending, hvíldartími sem viðgengst meðal bílstjóra í Evrópu á ekkert skylt með aðstæðum á eylandi, (ísland er eyja) það er líka staðreynd að fullt annað er í gangi og við látum vaða yfir okkur....
Það mættu 100 manns til að mótmæla þessu í dag... ég er einn af þeim sem viðurkenni að ég er stoltur af þeim. Tek ofan fyrir þeim.
Lítum í eigin barm.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn fengi 5% atkvæða myndiru kjósa hann? Ef það hefðu verið 100 þús manns að mótmæla nákvæmlega því sama og þessir menn voru að mótmæla í dag, væriru þá fylgjandi þessum mótmælum? Eru þeir ekki á réttri leið núna? Hættir að loka götum og mótmæla niðurá þingi eins og almenningur bað um?
Áfram mótmæli, við verðum að láta vita af okkur, veruleiki heillrar þjóðar er ekki eins hjá ölllum og enginn alþingismaður býr við bág kjör, það gerir aftur á móti undir 5% þjóðarinnar.
Hrópað af þingpöllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.4.2008 | 16:18
Í læri hjá Davíð
Raul Kastró hækkar eftirlaunin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2008 | 14:22
Leggur af stað kl 15 í dag....
Mótmælaganga Sturlu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.4.2008 | 13:01
Áfram svona.
Frábært hjá köllunum nú er um að gera að gefast ekki upp. En það er mjög mikil hætta á því að þetta fari þannig að allir snúist á móti þeim. Ráðamenn vinna og halda áfram að mjólka af okkur peningana.
En aldrei í sögunni hafa jafn miklir peningar komið inn í ríkisjóð af völdum bensínsverðs. Og við megum ekki gefast upp en hættan er sú að það komi nú í ljós hversu litlir mótmælundir við íslendinga erum og það byrjar þannig að almenningur segji. "Já er þetta ekki komið gott". Og svo lognast þetta út af og á endanum eru ráðamenn siguvegarar þessara umræðu en ekki skúrkar.
Buðu lögreglu upp á kaffi og vöfflur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2008 | 12:58
Reynir á Akranesi
Reynir læknir á Akranesi er einn þeirra sem er sekur um mörg mistök.
Hann greindi æxli í hálsi mér sem barkakýli. Það var svo 10 árum seinna sem meistari á læknavakt á smáratorgi bjargaði lífi mínu. En þangað fór ég þar sem ég var að kafna, náði vart andanum eitt kvöldið, og honum sýndist ástæða til að rannsaka barkakýlið sem honum fannst skrítið, það lá líka vinstra megin á hálsinum.
Reyni fannst það aldrei skrítið, en mamma sýndi honum þetta nokkrum sinnum. Þetta reyndist æxli sem skjaldkirtillinn hafði myndað. Ég var með 9 meinvörp niður hálsinn og minnstu munaði að þau væru komin í lungun. Takk fyrir Reynir.
Í dag er ég góður, en er enn í eftirlyti og fór í síðustu krabbameinsmeðferð sumarið 2006 en var skorinn 2004. Svo þaf ég að taka mínar 8 töflur daglega til að vinna á móti þeim innkirtlum sem aðrir hafa en ég ekki því skjaldkirtillinn var tekinn og fyrir slysni kalkkirtlarnir líka.
Önnur mistök sem gerð eru, en það var erfiðara að forðast þau heldur en sinnuleysi Reynis að skoða ekki skakka barkakýlið betur.
Fjöldi mistaka á sjúkrahúsum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.1.2008 | 17:04
F- Listinn var löngu búinn að vara við þessu.
Reyndust jákvæðir í berklaprófi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 14:50
Sjálfvirkur ljósabúnaður? Einar talar í hringi.
Sagði hann fá dæmi um jarðasöfnun á landsbyggðinni. En það eru dæmi. Er það ekki þegar einn maður safnar mörgum jörðum? Er það gott?
Ljósin, sem slokknuðu í sveitum landsins fyrir nokkrum árum, hefðu kviknað á ný. Hafði Einar að orði. En það býr enginn á þessum jörðum, einn maður hefur keypt um tuga jarða fyrir austan fjall. Hann býr ekki á neinum, hann kveikir hvergi ljós.
Vísaði hann (Jón) til þess, að í Danmörku og fleiri nágrannalöndum væru gerðar strangar kröfur um ábúð og nýtingu á bújörðum, sem skiptu um eigendur. Þau lög gera það að verkum að jörðin er nýtt og ábúandi ætlar að vera þar með búskap.
Einar spurði, hvort ríkið ætti að reyna að koma í veg fyrir að fólk úr þéttbýli setjist að á landsbyggðinni. Fáir auðmenn búa útí sveit Einar. Ertu ekki landbúnaðarráðherra? Hefuru komið upp í sveit? Hvað með lög um kaup á jörðum sem ekki á að nýta, hvað með lög um að sýna fram á nýtingu jarðar með kaupsamningi nýting er margskonar. Hvað með takmörkun á hektörum? Það er margt hægt að gera en lítið hægt. En það mætti reyna að koma í veg fyrir að einn maður kaupi og kaupi jarði, þó þeir séu fáir þá þarf að sýna þeim aðhald.
Eignamyndun á sér stað í sveitum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 14:20
Fyriliði
Fram að síðustu 2 leikjum fannst mér Eiður aldrei leggja sig fram með liðinu og var alfarið á móti því að hann væri fyrirliði. Hann stóð sig í síðustu 2 leikjum þrátt fyrir ömurlegt gengi, spurning hvað lá þar að baki? Umræðan og viðtalið við Eyjólf?
En það er aftur á móti spurning hvort hann sé orðinn þroskaðari og hvað Óli ætlar að gera með agavandamálin á liðinu og þá hvar og hvernig Eiður kemur að því. Var hann einn af þeim sem stalst út með liðinu um daginn? Er eitthvað til í því að Heiðar hætti vegna barnalegs gys Eiðs út í það að Heiðar stamar? Er það rétt að Eiður gistir með Sveppa á herbergi í heimaleikjum liðsins, fær hann til að skemmta sér? Á meðan aðrir í liðinu gista 2 og 2 saman.
Hvernig eru samskiptin í leik og á æfingu? Gerir Eiður í því að hvetja og hrósa. Ástæðan fyrir því að ég var á móti því að hann væri fyrirliði var m.a. sú að hann hristi alltaf hausinn út í meðspilara sína og smellti saman lófum um leið og horfði vonsvikinn út í loftið og hætti í staðinn fyrir að elta boltann og ná honum aftur. Persónulega finnst mér fyrirliðinn eigi að berja saman liðið og hvetja og öskra allan leikinn og leiða hópinn. Þess vegna væri minn fyrirliði Hemmi Hreiðars finnst það rökrétt en svo er annað að Eiður getur líka leitt með að skora.
Vandamál fyrir Óla Jó til að fá liðið til að spila með Eið í liðinu er að fá hina strákana 10 til að kveikja á sér og hífa sig upp í 110% framlag. Með Eið sem hluti af hóp er þetta frábært lið en með Eið sem stjörnu er hann bara of stór fyrir liðið og samsetning hópsins fer úr böndunum og verður engum til góðs.
Ólafur: Eiður verður áfram fyrirliði landsliðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.11.2007 | 13:49
Liðið mitt
Markmenn eru Árni Gautur Arason Valerenge Bjarni Þórður Halldórsson Víking. Varnamenn eru |
| ||||||
| Grétar Rafn Steinsson AZ Alkmar |
|
| ||||
Ármann Smári Björnsson Brann |
|
| |||||
|
| ||||||
| Ívar Ingimarsson Reading |
|
| ||||
| Hermann Hreiðarsson Pourstmoth Kristján Sigurðsson Brann Ragnar Sigurðsson Gautaborg Miðjumenn eruEmil Hallfreðsson Reggiana |
|
| ||||
| Brynjar Björn Gunnarsson Reading |
|
| ||||
| Jóhannes Karl Guðjónsson Burnley Bjarni Guðjónsson Í.A. |
|
| ||||
| Kári Árnason AGF Ólafur Ingi Skúlason Helsingborg Theodór E. Bjarnason Celtic Sóknar menn eru |
|
| ||||
| Veigar Páll Gunnarsson Stabek Garðar B. Gunnlaugsson Norrköping Gunnar Heiðar Þorvaldsson Hannover Ármann Smárason Heereven | ||||||
Utan hóps eða meiddir eru | |||||||
Garðrar Jóhannsson Fredrikstad. Birkir Már Sævarsson Val | |||||||
Hannes þ. Sigurðsson Dan Gunnar Þór Gunnarsson Hammarby | |||||||
Arnar Þór Viðarsson Twente Eiður Smári Guðjonshen Barcelona | |||||||
Ívar ekki í fyrsta landsliðshóp Ólafs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2007 | 21:07
Hræðilegt. Skömm að þessu. En ekkert verður gert. Eyjólfur fær nýjan samning eftir stór tap á móti Dönum
Eiður Smári: Þurfum að líta í eigin barm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Þórður Steinn Guðmunds
Bloggvinir
- stebbifr
- swaage
- pallvil
- solrun
- sigmarg
- omarragnarsson
- bryndisisfold
- dofri
- alcandiary
- gudmbjo
- julli
- atlifannar
- 730
- juliusvalsson
- joninaben
- halla-ksi
- maggib
- eyvi
- prakkarinn
- laugardalur
- dabbi
- mariaannakristjansdottir
- tidarandinn
- eyjapeyji
- fletcher
- sasudurnesjum
- vestfirdir
- bondakall
- gudni-is
- ithrottir
- snorris
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar